jæja
þá eru bara 2 dagar í skólasettningu og ég ætla ekki að ljúga ég
er orðin frekar spennt fiðrildið í maganum stækkar og stækkar...
hehe það er alveg eins og að ég hafi aldrei farið í skóla
áður..
ég fór í kringluna á
föstudaginn með henni Rakel frænku og ég var búin að lofa sjálfri
mér að kaupa ekki neytt en eftir að við vorum búnar að setjast
niður á kaffihúsi og spajlla smá var ég búin að gleyma því loforði
þar sem að við fórum beint að skoða í búðir eftir það... það endaði
með því að ég keypti mér tölvutösku sem ég reyndar þurfti og hún
kostaði bara 1990.. og svo keypti ég joeboxer náttgalla handa jónu
maríu sem ég þurfti ekki að kaupa en hann var bara svo sætur og
kostið líka bara 1990 og svo fórum við í skífun og ég keypti 2 cd
diska sem mer vantaði alls ekki en ég keypti þá samt...
en síðustu dögum hef ég eitt
í vinnuni er búin að vera að vinna alveg síðan á þriðjudaginn og á
föstudaginn tók ég meira að seigja 2 vaktir...
og núna um helgina tók ég 3
nætuvaktir... en ég á bara eftir að vinna á morgun fimmtudag og 4
tíma á föstudaginn og þá er ég bara hætt í 100% vinnu og fer aftur
niður í 30%...
en á miðvikudaginn verður
mikið að gera hjá mér ég byrja á því að fara á skólasettningu og
svo notla að versla bækur og ég ætla mér að reyna að klára það á
miðvikudaginn.. og svo kl hálf 5 á ég að mæta í húðhreinsun og svo
á miðvikudagskvoldið er planið að hittast nokkrar stúlku kindur á
kaffihúsi og rifja upp gamla tíma...
planið fyrir helgina er búið
að breytast nokkuð oft og það kæmi mér ekkert á óvart ef það á
eftir að breytast en meira í þessari viku.. en eins og planið er í
dag þá ætla ég bar að halda mér í bænum en ekki að fara á ísó þar
sem að allt mitt skyldfólk nánast áhvað að yfirgefa bæinn þegar að
þau vissu að ég væri að koma... hehe seigji bara svona þau hafa öll
mjög góða ástæðu til að vera ekki heima hjá sér...
en allaveganna þá er fólk
líka að reyna að draga mig á danskadaga sem ég hef ætlað að fara á
síðustu 3 eða 4 árin þannig að hvað gerir 1 ár til viðbótar áður en
ég fer...
en svo er líka verði að spá í
eitthvað búlgaríudjamm þar sem tequila kemur mikið við sögu svo ég
seigji ekki mikið meira... og ef ég á að seigja eins og er þá er
það að heilla mig þessa daganna en hver veit kannski ég láti bara
verða afþví að fara á danska daga...
og svo eftir næstu helgi
byrjar skólinn þetta árið...
en annars hef ég ekkert meira
að seigja núna nema kannski að ég er búin að henda inn fullt af
myndum frá versló helgi og það eiga fleiri eftir að koma þar sem ég
var óð á myndavélinni...
en þanngað til næst bless
bless